
SKÍÐAFERÐ TVÍUNDAR
60 pláss í boði • Tvíund meðlimir fá forgang
Sala opnar 6. febrúar kl. 12:00
Hvað fylgir með?
Rúta báðar leiðir
Rútupartí alla leiðina norður og frítt áfengi
Gisting
tvær nætur á Backpackers
Fullt af fríu áfengi
Þið þekkið þetta
Pizzur á föstudaginn
Pizza partý á Backpackers fyrir Sjalla
Skíðapassi afsláttur
20% afsláttur á skíðapössum í Hlíðarfjall (keypt í gegnum okkur)
Skógarböð afsláttur
20% afsláttur í Skógarböðin
SFHR Sjallinn
Miði á Sjallaball SFHR
Leyni Partý Tvíundar
Leyni partý Tvíundar fyrir meðlimi (frítt áfengi)
Helgardagskráin
Þriggja daga station helgi
FÖSTUDAGUR
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
Algengar spurningar
Get ég farið bæði á skíði og í Skógarböðin?
Já! Við erum með rútu sem fer kl. 10:00 á skíði og kl. 12:00 í Skógarböðin. Ef þú vilt fara í bæði þarftu að redda þér í Skógarböðin á öðrum tíma. Við bjóðum upp á 20% afslátt.
Er skíðapassinn innifalinn?
Nei, en þú færð 20% afslátt á skíðapassa í Hlíðarfjall ef hann er keyptur í gegnum okkur.
Get ég keypt fyrir vini?
Nei, hver þarf að skrá sig sjálfur með sínu símanúmeri vegna auðkenningar.
Hvað ef ég kann ekki að skíða?
Ekkert mál! Þú getur farið í lyftuni upp og chillað uppi í skála, farið í Skógarböðin eða bara slakað á á Akureyri.
Fá Tvíund meðlimir forgang?
Já! Meðlimir fá forgang en ef pláss fyllast ekki opnum við fyrir almenna sölu.
Hvenær þarf að greiða?
Greitt er strax við skráningu. Við erum ekki með staðfestingargjald þar sem eftirspurn hefur verið mikil undanfarin ár og ekki allir sem vilja komist að.
Hvar hittumst við og hvenær?
Við hittumst tímanlega fyrir utan HR þar sem rútan fer af stað (nákvæm tímasetning kemur seinna).
Þarf ég að koma með eitthvað?
Ef þú ætlar á skíði eða bretti, taktu búnaðinn þinn með og allt sem því fylgir. Annars mælum við með hlýjum fötum, öllu helsta ferðadótinu og góða skapinu 😄
Verður hægt að leigja búnað í Hlíðarfjalli?
Já, það er hægt að leigja búnað, en hver og einn sér um það sjálfur. Undanfarin ár hefur eftirspurn verið mikil og allt klárast fljótt.
Tilbúinn í þetta?
Ekki missa af bestu helgi annarinnar!
✨ Aðeins 60 pláss laus